
Fréttabréf Lundarskóla
Desember 2023
Kæru foreldrar/forráðamenn
Senn líður að jólum og því fáir kennsludagar eftir á þessu ári. Í desember verður töluvert um uppbrot í skólastarfi þar sem nemendur vinna meira að sköpun í tengslum við jólin.
Hér í fréttabréfinu má sjá skipulag varðandi ýmsa viðburði í skólanum t.d. hurðaskreytingakeppni, litlu jól, jólapeysu-/rauðan dag og Lundó Got Talent.
Við leitumst öll við að sýna umhyggju og góðvild í árstíð ljóss og friðar og njóta samvista.
Rauður dagur/jólapeysudagur 19. desember
Hefð er fyrir því að hafa rauðan dag, og/eða jólapeysudag síðasta daginn fyrir litlu jól. Við ætlum öll að mæta í rauðu eða með eitthvað rautt á okkur. Það geta verið t.d. peysur, jólahúfur, annar rauður fatnaður eða skraut.
Litlu jól 19. og 20. desember
Í desember er hefð fyrir því að 1. bekkur sé með atriði tengt jólahátíðinni á sviði skólans. Að þessu sinni verður nemendasýning hjá 1. bekk þann 19. desember í salnum á skólatíma. Nemendum, foreldrum/forráðamönnum og leikskólabörnum verður boðið á sýningar skv. skipulagi. Umsjónarkennarar sjá um að upplýsa foreldra nánar þegar nær dregur varðandi hópaskiptingar og tímasetningar á sýningum.
Áætlað er að hafa sýningar verða á eftirfarandi tímum:
Kl. 8:45 verður sýning fyrir foreldrar/forráðamenn, leikskólanemendur og nemendur í 7.–10. bekk
Kl. 9:30 verður sýning fyrir foreldra/forráðamenn og nemendur í 2. – 6. bekk
Síðustu ár hefur unglingastigið okkar haft litlu jólin að kvöldi til þannig að nú í ár verða litlu jól hjá 7. - 10. bekk þriðjudaginn 19. desember kl. 18:00 – 20:00. Nemendur í þessum árgöngum fara svo jólafrí eftir litlu jólin. Nemendur mæta í heimastofur þegar þeir mæta á litlu jólin.
20. desember verða litlu jólin hjá nemendum í 1. -6. bekk kl. 9:00 – 11:00 og mæta nemendur í heimastofur.
Hurðaskreytingakeppni
Í desember verður hurðaskreytingakeppni í Lundarskóla. Allir árgangar og starfsmenn skreyta sínar hurðir og svo verður kosið um best skreyttu hurðina. Allir geta tekið þátt í kosningunni og skila þarf inn atkvæði í kjörkassa sem verður staðsettur hjá ritara. Hver og einn má skila inn einu atkvæði. Hægt verður að kjósa dagana 14. og 15. desember. Mánudaginn 18. desember verða atkvæði talin og verðlaunað fyrir best skreyttu hurðina.
Það vilja allir hafa vel skreyttar hurðir😊
Lundó Got Talent
Í Lundarskóla er virkt nemendaráð sem hefur skipulagt hæfileikakeppnina Lundó Got Talent mánudaginn 18. desember.
Í fyrra var keppnin fyrir 7.-10. bekk og gekk bærilega.
Nú er hugmyndin hjá þeim að hafa keppnina tvískipta: 1.-4. bekkur í annarri keppninni og 5.-10. bekkur í hinni. Keppni 1.-4. bekkjar verður í salnum 18. desember milli kl. 8:10 og 9:30 en 5.-10. bekkjar verður á milli kl. 9:50-11:10.
Það er frábært framtak hjá nemendaráðinu að skipuleggja svona viðburð og halda utan um hann. Hér má sjá auglýsingu sem nemendaráðið gerði í tengslum við viðburðinn.
Vissulega er val um það hjá nemendum að taka þátt.
Við sendum ykkur bestu jóla og nýárskveðjur og þökkum fyrir samstarfið á árinu sem er að líða. Við hlökkum til að takast á við verkefnin sem bíða okkar á nýju ári.
Jólakveðja
Maríanna, Fjóla Dögg og Helga Rún
stjórnendur Lundarskóla