
Menntabúðir #Eymennt
Dalvíkurskóla 20. okt. kl. 16:00-17:30
Upplýsingatækni á miðstigi
Að þessu sinni verður viðfangsefni menntabúðanna upplýsingatækni á miðstigi. Þær verða haldnar í Dalvíkurskóla þriðjudaginn 20. október kl. 16:00-17:30.
Markmið menntabúðanna er að gefa kennurum þessa aldurshóps kost á að miðla reynslu sinni af notkun upplýsingatækni og læra hver af öðrum. Kennarar eru hvattir til að segja frá reynslu sinni og deila góðum hugmyndum.
Kynningar, spurningar og umræður
Jafnhliða því sem kennarar eru hvattir til að koma á menntabúðirnar til að deila reynslu sinni og þekkingu þá er nú þegar ljóst að fjölbreyttar smiðjur verða í boði.
Þátttakendur geta búist við að hafa velt eftirfarandi spurningum fyrir sér með þeim sem þeir hitta á menntabúðunum:
- Hvað er árangursríkt að vinna með nemendum í upplýsingatækni og hvers vegna?
- Hver eru helstu vandamálin við kennslu upplýsingatækni á miðstigi og hvernig má komast hjá þeim?
- Hvaða smáforrit (öpp) virka vel í kennslu og hvernig eru þau notuð?
- Hvaða smáforrit virka ekki og hvers vegna ekki?
- Hvernig myndu kennarar miðstigs vilja sjá spjaldtölvuvæðingu grunnskóla?
Hvað eru menntabúðir #Eymennt?
Menntabúðir #Eymennt eru styrktar af Endurmenntunarsjóði grunnskóla og eru samstarfsverkefni Hrafnagilsskóla, Brekkuskóla á Akureyri, Þelamerkurskóla og Dalvíkurskóla. Kennarar úr öðrum grunn- og leikskólum eru velkomnir að fylgja samstarfsskólunum fjórum eftir í þessari endurmenntunarvegferð.
Á núverandi skólaári er áætlað er að halda átta menntabúðir, mánaðarlega og verða ólík þemu sett upp í hvert skipti.