
Brekkuskóli
Nóvember 2023
Ágætu foreldrar og forráðamenn
Þegar þetta er skrifað stendur yfir undirbúningur árshátíðar, þá iðar skólinn af lífi og fjöri. Þetta uppbrot er alltaf jafn skemmtilegt því við leggjum mikinn metnað í árshátíðina okkar. Við fáum leikstjóra og undirleikara í hús sem vinna með nemendum og starfsfólki að undirbúningnum. Það verður gaman að fá foreldra og aðra aðstandendur í hús til að sjá afrakstur þessarar vinnu þann 23. nóvember!
Einnkunnarorð skólans eru MENNTUN GLEÐI UMHYGGJA OG FRAMFARIR og á merking þessara orða að setja mark sitt á allt starf í skólanum. Grunnskólastarfið kemur inn á mörg svið sem tengjast okkar daglega lífi, á myndinni sem fylgir hér að ofan er búið að teikna upp helstu þættina. Við erum að hefja þá vegferð að verða Réttindaskóli Unicef en með því ætlum við betur að rækta þekkingu leikni og viðhorf sem hjálpar okkur að verða gagnrýnir, virkir og hæfir þátttakendur í samfélaginu. Við ætlum með markvissari hætti en áður að taka mið af Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í ákvarðanatöku um skólastarfið.
Árshátíð
Árshátíð Brekkuskóla er alltaf stór viðburður á hverju hausti. Ekki má gleyma að nefna að foreldrar leggja hönd á plóg til að kökuhlaðborðið verði sem glæsilegast en það er fjáröflun fyrir útskriftarferð 10. bekkjar. Ævintýraveröld hefur verið í höndum nemenda í 6. bekk og er það fjáröflun fyrir ferð að Reykjum að ári. Dagskrá árshátíðar má sjá hér en við vekjum líka athygli á að gestir geta einnig skoðað ýmis verk nemenda í kennslustofum.
Upphátt og Litla upplestrarkeppnin
Þann 16. nóvember á degi íslenskrar tungu hefst upplestrarkeppni bæði í 4. og 7. bekk. Markmiðið með báðum þessum keppnum er að hver og einn nemandi keppi við sjálfan sig og þjálfi markvisst upplestur. 7. bekkur mun svo á vorönn taka þátt í upplestrarkeppni grunnskólanna á Akureyri sem heitir Upphátt. Haldin verður upplestrarhátíð fyrir 4. bekk hér í Brekkuskóla. Samhliða keppninni í 7. bekk verður efnt til samkeppni á meðal þeirra nemenda um veggspjald sem verður notað til að kynna keppnina.
Bókakostur skólans
Brekkuskóli býr svo vel að hafa öflugt og gott foreldrafélag sem styður við skólann og skólastarfið á ýmsan hátt. Nýverið barst frá þeim styrkur til bókakaupa og er hluti af bókunum sem sjá má á myndinni hér til hliðar fjármagnaður af foreldrafélaginu. Framundan er svo skemmtilegur tími þegar bókin og bóklestur fær enn meira rými. Nemendur í 10. bekk eru farnir að undirbúa upplestur úr nýjum bókum fyrir yngri nemendur og rithöfundar kíkja í heimsókn, lesa fyrir nemendur og spjalla.
Hafðu samband
Email: brekkuskoli@brekkuskoli.is
Website: brekkuskoli.is
Location: v. Skólastíg
Phone: +354 414-7900
Facebook: https://www.facebook.com/brekkuskoli.is/