
Fréttabréf Grenivíkurskóla
5. tbl. 4. árg. - maí 2023
Kæra skólasamfélag
Þá er síðasti mánuður skólaársins runninn upp og sól og sumar handan við hornið!
Aprílmánuður hófst á páskafríi en við tóku fjörugar vikur í skólanum þar sem við héldum meðal annars upplestrarkeppni, en nánar er sagt frá því hér að neðan.
Framundan í maí - og í upphafi júní - eru svo hefðbundin vorverk; námsmat, útskriftarhátíðin Runólfur, útivistardagar og skólaslit, en að þessu sinni verður skóla slitið mánudaginn 5. júní næstkomandi.
Með kveðju úr skólanum,
Þorgeir Rúnar Finnsson
skólastjóri Grenivíkurskóla
Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk
Lokahátíðin var svo haldin í Hlíðarbæ þann 27. apríl, en þangað mættu lesarar frá Grenivíkurskóla, Þelamerkurskóla, Hrafnagilsskóla, Árskógarskóla, Dalvíkurskóla og Grunnskóla Fjallabyggðar. Keppendur stóðu sig allir með mikilli prýði og svo fór að Katla Eyfjörð stóð uppi sem sigurvegari. Við óskum henni, og keppendum öllum, til hamingju með frábæran árangur.
Heilsueflandi skóli
Við vekjum athygli á klámspjalli Stígamóta þar sem hægt er að finna leiðbeiningar til foreldra um hvernig hægt er að taka samtal við börn og unglinga um klám. Það er eðlilegt og heilbrigt að unglingar séu forvitnir um kynlíf, en ljóst að óheft aðgengi að klámi getur skaðað kynheilbrigði þeirra og stuðlað að ranghugmyndum um kynlíf og samskipti. Því er mikilvægt að foreldrar taki umræðuna um þessi mál snemma og á áðurnefndri heimasíðu er að finna heilmargt efni sem getur reynst gagnlegt til þess.
Þá er gott að minnast á heimasíðuna "Sjúkt spjall", þar sem ungmenni undir 20 ára geta haft samband, nafnlaust, við ráðgjafa sem geta veitt aðstoð, stuðning, og upplýsingar um ýmislegt sem tengist samskiptum, samböndum, og ofbeldi.
Dagatal Velvirk fyrir þennan mánuð ber yfirskriftina "Mikilvægi maí". Á dagatalinu má finna ýmsar tillögur sem eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi, svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins.
Smellið hér til að sjá útprentanlegt pdf-skjal með dagatalinu.
Grænfáninn
Myndir úr skólastarfinu - apríl
Á döfinni í maí og júní
- 1. maí: Verkalýðsdagurinn - frí í skólanum
- 3. maí: Samskóladagur fyrir 5.-7. bekk í Stórutjarnaskóla
- 18. maí: Uppstigningardagur - frí í skólanum
- 29. maí: Annar í hvítasunnu - frí í skólanum
- 1. júní: Útivistardagur
- 2. júní: Útivistardagur
- 5. maí: Starfsdagur - frí hjá nemendum. Skólaslit kl. 17:00.
Grenivíkurskóli
Ábyrgðarmaður: Skólastjóri Grenivíkurskóla
Email: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is
Website: http://www.grenivikurskoli.is
Location: Grenivík
Phone: 414-5413
Facebook: https://www.facebook.com/search/top?q=greniv%C3%ADkursk%C3%B3li