
Fréttabréf Grenivíkurskóla
3. tbl. 5. árg. - mars 2024
Kæra skólasamfélag
Áfram höldum við með skólaárið, marsmánuður hafinn og ekki laust við að það sé hreinlega vor í lofti, í það minnsta þegar þetta er skrifað. Birtustundum fjölgar hratt, sólin hækkar á lofti og það styttist í að hinir ýmsu farfuglar láti sjá sig eftir vetrardvöl á hlýrri slóðum.
Það er heilmikið um að vera í mars. Þar ber hæst Vorskemmtunina, en sýningar verða haldnar miðvikudaginn 13. mars og fimmtudaginn 14. mars nk., en báðar hefjast þær kl. 17:00. Vorskemmtunin og undirbúningur hennar er afar mikilvægur þáttur í skólastarfinu. Þar fer fram fjölbreytt nám þar sem nemendur þjálfast meðal annars í sviðsframkomu og söng, og á hverju ári eru fjölmargir litlir og stórir sigrar unnir, enda heilmikið mál að stíga á svið fyrir framan fullan sal af fólki. Þess utan er Vorskemmtunin einn mikilvægasti liðurinn í fjáröflun fyrir skólaferðalagið. Við hlökkum til að taka á móti gestum og sýna Dýrin í Hálsaskógi 13. og 14. mars nk.
5. mars gerum við stutt hlé á Vorskemmtunarundirbúningi og skellum okkar í árlega skíðaferð, sem hefur ávallt tekist með mikilli prýði.
Síðasti kennsludagur fyrir páskafrí er föstudagurinn 22. mars. Skóli hefst á ný að loknu páskaleyfi miðvikudaginn 3. apríl.
Með kveðju úr skólanum,
Þorgeir Rúnar Finnsson
skólastjóri Grenivíkurskóla
Rauðhetturugl
Nemendur í leiklistarvali settu upp sýninguna "Rauðhetturugl" þann 1. febrúar sl. Sýningin var afar vel heppnuð og stóðu nemendur sig með mikilli prýði, en þau höfðu æft sig undir dyggri leiðsögn Hóbbu leikstjóra. Þau sem tóku þátt í leikritinu voru þau Ari Logi, Freyja Rán, Gylfi, Ísadóra Arnbjörg, Marit Siana, Selma Lind og Sindri Páll.
Heilsueflandi skóli
Dagatal Velvirk fyrir þennan mánuð ber yfirskriftina "í núvitund í mars". Á dagatalinu má finna ýmsar tillögur sem eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi, svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins.
Smellið hér til að sjá útprentanlegt pdf-skjal með dagatalinu.
Grænfáninn
Frekari upplýsingar og hugmyndir að ýmsum verkefnum má finna á hér.
Myndir úr skólastarfinu
Matseðill
Á döfinni í mars
- 5. mars: Skíðadagur.
- 6. mars: Tónleikar TE kl. 8:20 í græna salnum.
- 13. mars: Vorskemmtun - fyrri sýning.
- 14. mars: Vorskemmtun - síðari sýning.
- 23. mars - 1. apríl: Páskafrí.
- 2. apríl: Starfsdagur - frí hjá nemendum.
- 3. apríl: Skóli hefst að loknu páskafríi.
Útgefandi: Grenivíkurskóli
Ábyrgðarmaður: Skólastjóri Grenivíkurskóla
Tölvupóstur: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is
Heimasíða: http://www.grenivikurskoli.is
Sími: 414-5413
Facebook: Grenivíkurskóli