
Rúgbrauð og reyktur silungur
Til styrkar ferðasjóði 8. og 9. bekkjar Þelamerkurskóla
Rúgbrauð og reyktur silungur af bestu sort
Nemendur 8. og 9. bekkjar Þelamerkurskóla ætla að skella í rúgbrauð fimmtudagskvöldið 10. mars.
Föstudaginn 11. mars dreifa nemendur brauðinu ásamt reyktum silungi til þeirra sem hafa keypt varninginn af þeim í forsölu.
Um er að ræða rúgbrauðsbita og um það bil 300 g. flak af reyktum silungi frá Betri vörum (áður fiskeldið og verkunin í Hlíð á Ólafsfirði). Hver skammtur kostar 2000 kr.
Allur ágóði af sölunni rennur í ferðasjóð nemenda 8. og 9. bekkjar.
Forsalan er á netinu!
Forsalan fer fram á netinu og með því að smella á hnappinn hérna fyrir neðan skráir þú kaup þín.
Vertu snöggur að tryggja þér þennan gæða varning.
Fyrstir koma fyrstir fá!