fb-pixel
Smore logo
remove_red_eye 1.6K

Hvalrekinn

Ágúst 2021

HvalrekinnÁgúst 2021

Við upphaf skóla

Ágætu foreldrar,


Þá fer að líða að upphafi skólaárs hjá okkur í Hvaleyrarskóla. Ég vona svo sannarlega að allir hafi haft það sem best í sumar og flestir getað skoðað sig um á okkar fallega landi.


Skólasetning er þriðjudaginn 24. ágúst sjá nánari tímasetningar hér fyrir neðan. Vegna ástandsins í þjóðfélaginu verðum við að hafa skólasetningu nemenda í 2. - 10. bekk án foreldra og þær fara fram í umsjónarstofum nemenda.

Þó ég geti ekki séð ykkur kæru foreldrar á þriðjudaginn þá minni ég á mikilvægi góðs samstafs því þið eruð öflugur hlekkur í menntun ykkar barna ásamt þeim öfluga starfsmannahópi sem við höfum yfir að ráða.


Eins og undanfarin ár fá nemendur afhent í skólanum öll námsgöng. Nemendur þurfa því einungis að eiga skólatösku, sund- og íþróttafatnað og skriffæri til notkunar heima.

Mikilvægt er að við brýnum fyrir börnunum mikilvægi þess að ganga vel um námsgögn.


Góð mæting í skóla er viðamikill þáttur í farsælli skólagöngu og vellíðan barna og unglinga. Að missa ítrekað úr kennslustundum, t.d. í lestri á yngra stigi eða stærðfræði á eldri stigum, getur haft áhrif á námsárangur þegar fram í sækir.

Varðandi lesturinn þá trúum við því að allir hafi verið duglegir að lesa. Það er eins með lesturinn og annað sem við tökum okkur fyrir hendur að eftir því sem við æfum okkur meira þá gengur okkur betur.


Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri

zoom_out_map

Hvaleyrarskóli er hnetulaus skóli

Þar sem nemandi skólans er með bráðaofnæmi fyrir hnetum er Hvaleyrarskóli hnetulaus skóli og biðjum við foreldra jafnt sem starfsfólk að virða það. Nemendur og starfsfólk mega því ekki koma með hnetur í skólann.
zoom_out_map

Skólasetning

Skólasetningin þriðjudaginn 24. ágúst fer fram í heimastofum nemenda sem hér segir:

Kl. 8:30 - 9:20

  • 8. GRB í stofu 3
  • 8. MK í stofu 1
  • 9. MS í stofu 2
  • 9. WR í stofu 5
  • 10. BKS í stofu 7
  • 10. GB í stofu 4

Kl. 9:30 – 10:20
  • 2. IVJ í stofu 38
  • 2. MI í stofu 36
  • 3. AES í stofu 39
  • 3. EÞ í stofu 24
  • 3. LBH í stofu 22
  • 4. AEJ í stofu 27
  • 4. AUS í stofu 29
  • 4. BÆ í stofu 25

Kl. 10:30 – 11:20
  • 5. BJG í stofu 16
  • 5. HÁ í stofu 18
  • 6. IÓ í stofu 14
  • 6. SA í stofu 19
  • 7. NBS í stofu 23
  • 7. SL í stofu 21


Vegna aðstæðna verður skólasetning hjá 2. - 10. bekk án foreldra. Kennsla hefst hjá öllum nemendum skólans miðvikudaginn 25. ágúst samkvæmt stundaskrá.

Nemendur í 1. bekk eru með sérstöku bréfi boðaðir til viðtals hjá umsjónarkennara þriðjudaginn 24. ágúst.

Miðvikudaginn 25. ágúst kl. 08:20 verður skólasetning á sal skólans hjá nemendum í 1. bekk. Með hverju barni mega að hámarki koma einn til tveir. Vinsamlega virðið sóttreglur og mælst er til þess að foreldrar komi með grímur á skólasetninguna. Að því loknu fara nemendur í sínar heimastofur og foreldrar verða eftir í salnum þar sem farið verður yfir hagnýtar upplýsingar er varðar skólagöngu barnsins. Upplýsingafundurinn mun standa til um kl. 9:30.

zoom_out_map

Mataráskrift skólaárið 2021-2022

Í upphafi skólaárs þarf að skrá öll börn í mataráskrift í gegnum heimasíðu Skólamat, sjá vefslóð: https://www.skolamatur.is/ og geta aðstandendur skráð nemendur í mataráskrift. Skráning hefst mánudaginn 23. ágúst.

Hér má finna nánari upplýsingar frá Skólamat á íslensku, ensku og pólsku


Ávaxta- og grænmetishressing
Í morgunfrímínútum (á bilinu 9.15-10.10 (um 20 mín. á hóp, hjá sumum afhent í stofur (1.-7. bk.) og öðrum í matsal (8.-10. bk.)) er boðið upp á ávaxta- og grænmetishressingu í áskrift.

Síðdegishressing

Áfram verður hægt að kaupa síðdegishressingu af Skólamat en slíkt verður eingöngu í boði í fastri áskrift eftir vikudögum.


Áskrift á síðdegishressingu fer fram í gegnum vef Skólamatar, https://askrift.skolamatur.is/.


Morgunverður
Dagleg rútína hefst með morgunmat, hafragraut, sem er í boði fyrir nemendur og starfsfólk skóla áður en kennsla hefst, eða um 10-15 mín. áður en fyrsta kennslustund hefst. Í boði er þorskalýsi. Engar skráningar eru fyrir þátttökunni og mæting frjáls en bærinn kaupir ákveðið magn á hverjum degi fyrir starfsfólk og nemendur eftir þörfum.


Hér má sjá reglur fyrir Niðurfellingu á fæðisgjaldi vegna systkina í grunnskólum Hafnarfjarðar.

zoom_out_map

Holtasel

Nú er nýtt skólaár gengið í garð og stutt í að skólinn byrji á fullu og sama gildir um frístundaheimilið Holtasel. Fyrir ykkur sem ekki þekkið til þá er Holtasel frístundaheimilið í Hvaleyrarskóla og stendur það fyrir fjölbreyttri dagskrá eftir skóla fyrir nemendur í 1. til 4. bekk. Holtasel opnar kl: 13:00 alla skóladaga og er opið til 17:00. Þegar skertir dagar eru í skólanum opnar Holtasel fyrr og þarf að skrá börnin sérstaklega fyrir þá daga, við munum senda póst þegar kemur að þessum dögum.


Þriðjudaginn 24. ágúst er starfsdagur í Holtaseli og því verður lokað þann dag. Miðvikudaginn 25. ágúst er opnað á venjulegum tíma eftir skóla fyrir þá sem eru skráðir og búnir að fá samþykkta umsókn.

Póstur verður sendur til foreldra með nánari upplýsingum áður en Holtasel hefst.

Síminn í Holtaseli er 534-0200 og hægt er að hringja í hann þegar starfið hefst á daginn, einnig er hægt að hringja í vinnusíma deildarstjóra 664-5778.

zoom_out_map

Kynningafundir fyrir foreldra

Vegna ástandsins í landinu (Covid) munum við ekki halda fyrirhugaða kynningafundi með foreldrum. Þess í stað munum við tengja hér að neðan glærur sem við ætluðum að vera með á þessum fundum. Við biðjum ykkur um að lesa þær vel yfir og hafa samband við okkur ef þið hafið einhverjar spurningar.


  • Stjórnendaglærur fyrir foreldra nemenda í 1. bekk.
  • 1. bekkur - glærur kennara
  • Stjórnendaglærur fyrir foreldra nemenda í 2., 3. og 4. bekk.
  • 2. bekkur - glærur kennara
  • 3. bekkur - glærur kennara
  • 4. bekkur - glærur kennara
  • Stjórnendaglærur fyrir foreldra nemenda í 5., 6. og 7. bekk.
  • 5. bekkur - glærur kennara
  • 6. bekkur - glærur kennara
  • 7. bekkur - glærur kennara
  • Stjórnendaglærur fyrir foreldra nemenda í 8., 9. og 10. bekk.
  • 8. bekkur - glærur kennara
  • 9. bekkur - glærur kennara
  • 10. bekkur - glærur kennara
  • English summary
  • Upplýsingar frá íþróttakennurum.
zoom_out_map

Bjarg - deild fyrir nemendur sem sækja um alþóðlega vernd

  • Hér er kynning á Bjargi á íslensku.
  • Hér er kynning á Bjargi á ensku.
zoom_out_map

Lestur er lífsins leikur

Hér er bæklingur frá Bókasafni Hafnarfjarðar um mikilvægi lesturs á:


  • Íslensku
  • Ensku
  • Pólsku
zoom_out_map

Mentor - leiðbeiningar fyrir aðstandendur

Hér má nálgast leiðbeiningar sem Infomenntor gefur út fyrir aðstandendur í byrjun skólaárs 2021

Reglur um ástundun í grunnskólum Hafnarfjarðar

Við minnum á samræmdar reglur um ástundun í grunnskólum Hafnarfjarðar en kynning á þeim er í kynningarglærum árganganna. Reglur og viðbragðsáætlun eru samræmdar þannig að ekki sé mismunun milli skóla bæjarins.


Starfsfólk skólanna í Hafnarfirði hefur áhyggjur af minnkandi skólasókn og fjölgun nemenda sem teljast falla undir skilgreiningar um skólaforðun. Í reynd eru allar fjarvistir frá skóla óheppilegar af ýmsum ástæðum og því er ekki gerður greinarmunur á fjarvistardögum þótt greinarmunur sé gerður á tilefni fjarvista. Eftir því sem skólasókn fer minnkandi taka við aukin viðbrögð af hálfu skóla til að koma sem lengst í veg fyrir að námsárangur nemenda versni vegna slakrar skólasóknar og vanlíðan aukist.

Meginefni reglanna er:


1. AÐ VIRÐING SÉ BORIN FYRIR SKÓLASÓKN

Allt skólasamfélagið (forsjáraðilar, nemendur, starfsfólk skóla) verður að bera virðingu fyrir mikilvægi skólasóknar alla 180 skóladaga nemenda í grunnskóla á hverju skólaári.


2. AÐ SKÓLA BERI ENGIN SKYLDA TIL SÉRSTUÐNINGS VEGNA LEYFA

Starfsfólk skóla ber ekki skylda til að þjónusta einstaka nemendur sérstaklega vegna fjarvista frá skóla, hverju nafni sem þær nefnast, og skulu forsjáraðilar ekki óska eftir slíkri þjónustu (t.d. að kennarar gefi út sérstaka heimavinnu eða skilaboð þegar um er að ræða persónuleg leyfi fjölskyldna).


3. AÐ SKRÁÐ SÉ RAUNSKÓLAMÆTING Í LOK SKÓLAÁRS Á VITNISBURÐARBLAÐ NEMANDA

Allar fjarvistir, hverju nafni sem þær nefnast, búa til eina raunmætingareinkunn sem gefin er á vitnisburðarskírteini nemenda í lok skólaárs, sem prósentuhlutfall af skólasókn yfir skólaárið.


4. AÐ GEFIN SÉ ÁRLEG LOKAEINKUNN (A-D) VEGNA SKÓLASÓKNAR Á VITNISBURÐARBLAÐ

Ástundun sem snýr að fjarvistum, seinkomum og brottrekstri úr kennslustundum mynda á einu skólaári skólasóknareinkunn sem hver nemandi fær á matskvarðanum A, B+, B, C+, C og D í samræmi við kvarða (sjá fylgiskjal póstsins).


5. AÐ VIÐBRÖGÐ SKÓLA OG BARNAVERNDAR VIÐ MINNKANDI SKÓLASÓKN SÉU SAMHÆFÐ

Þótt forsjáraðilar hafi víðtækar heimildir til að tilkynna veikindi og leyfi frá skóla munu skólar bregðast við öllu slíku sem „fjarvistum“ óháð tilefni, í samræmi við reglur. Allar fjarvistir frá skóla eru óheppilegar og miklar fjarvistir (umfram 10% kennslutímans eða 18 skóladaga á skólaári) geta hamlað námsárangri barna. Það er skylda nemenda að mæta í skóla nema að löggild forföll hamli. Umræddar reglur gilda um alla grunnskóla Hafnarfjarðar jafnt og færast með nemendum flytji þeir á milli skóla innan Hafnarfjarðar á skólaárinu.

Aðalfundur foreldrafélagsins

Aðalfundur foreldrafélagsins verður haldinn þriðjudaginn 7. september kl. 20:00. Um verður að ræða fjarfund á Teams. Nánar auglýst og slóð send þegar nær dregur.

Stjórn foreldrafélgsins.

KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA KURTEISI ~ ÁBYRGÐ ~ SAMVINNA

zoom_out_map

Hvalrekinn


Opnunartími skrifstofu:

Kl. 7:45 - 15:30 mán-fim

Kl. 7:45 - 14:00 fös



Fréttabréf Hvaleyrarskóla. Sent á foreldra nemenda skólans og skólasamfélagið.

Email: hvaleyrarskoli@hvaleyrarskoli.is
Website: www.hvaleyrarskoli.is
Location: Akurholti 1
Phone: 354 565 0200
Facebook: https://www.facebook.com/hvaleyri/

Loading indicator

close

Created with Smore

Communicate quickly and effectively with interactive newsletters.

Smore empowers educators to connect with their community, streamline school communications,
and increase engagement.

Create a newsletter
Get started with free school newsletter templates!