
Netið okkar
Námskeið um stafræna borgaravitund og ábyrga netnotkun
Námskeiðið Netið okkar er ókeypis og opið öllum en einkum ætlað skólafólki, foreldrum og öðrum sem koma að uppeldi og menntun ungmenna. Það er sjálfstætt framhald námskeiðsins Netið mitt sem var í boði á vormisseri 2017 en þá var fjallað um borgaravitund og lýðræði, sjálfsmynd og netorðspor, réttindi og ábyrgð, andlega og líkamlega heilsu og vellíðan. Á námskeiðinu Netið okkar verður fjallað um siðareglur og netvenjur, samskipti og sambönd, netöryggi og læsi og samfélagsþátttöku.
Meginmarkmið námskeiðanna beggja er að stuðla að aukinni stafrænni borgaravitund ungmenna, það er að þau verndi og beri virðingu og umhyggju fyrir sjálfum sér og öðrum í stafrænum heimi, stundi örugga netnotkun og nýti miðla og nýja tækni með ábyrgum og skapandi hætti.
Í byrjun námskeiðsins Netið okkar verður staðlota og einnig í lok námskeiðs en að öðru leyti verður það á netinu. Boðið verður upp á nokkrar vefmálstofur í rauntíma sem verða á fimmtudögum kl. 16:15-17:15. Tækifæri verða gefin til umræðu og skoðuð verða verkefni sem tengjast daglegu lífi, uppeldi og kennslu og þátttakendur hvattir til að deila hugmyndum og reynslu um áskoranir og álitamál, námsefni og kennsluhætti.
Skipulag og efnistök
- 9.10. Námskeiðið opnar á netinu.
- 14.10. Staðlota 1 laugardagur kl. 13-17 - Kynning og verkefnavinna.
16. - 29. október: Siðareglur og netvenjur
19.10. Vefmálstofa kl. 16:15-17:15
- Hafþór Freyr Líndal, fulltrúi Ungmennaráðs SAFT: Ungt fólk og hatursorðræða
Innleggið fjallar um þátt ungs fólks á netinu með áherslu á hatursorðræðu. Ungmennaráð SAFT hefur undanfarið unnið mikið með hatursorðræðu í sinni vinnu og verður m.a. fjallað um hvað hatursorðræða er, mismuandi birtingamyndir, hvernig er hægt að verjast og hvernig er hægt að vinna með málefnið. - Sigríður Dögg Arnardóttir (Sigga Dögg), kynfræðingur: Kynferðisleg rafræn skilaboð og myndefni útfrá sexting og klámi. Í erindinu verður fjallað um samþykki, samfélagsmiðla, eignarrétt á líkama, nekt og kynferðislega tjáningu á rafrænu formi. Erindið hentar þeim sem vinna með börnum og unglingum.
30. október -12. nóvember: Samskipti og sambönd
2.11. Vefmálstofa
- Vanda Sigurgeirsdóttir lektor Háskóla Íslands: Einelti og jákvæð samkskipti
- Salvör Gissurardóttir, lektor Háskóla Íslands: Netmiðlar og snjalltæki, tækniþróun og valdefling. Sérstaklega verður fjallað um miðla þar sem auðvelt er að senda og skoða
gegnum snjalltæki og öpp eins og Twitter, Pinterest, Instagram, Snapchat,
Tumblr.
13. - 26. nóvember: Netöryggi
16.11. Vefmálstofa
- Þórir Ingvarsson, lögreglufulltrúi og Þröstur Jónasson, gagnasmali:
Hvernig kennum við fólki leiðir til að vernda tæki sín?
Hvernig upplýsum við almenning um hvernig best er að vernda sig gegn netglæpum
25.11. Staðlota 2 laugardagur kl. 13-17 - Afrakstur og framhald.
27. nóvember - 11. desember: Læsi og samfélagsþátttaka
30.11. Vefmálstofa
- Hrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla
- Skúlína Kjartansdóttir, aðjúnkt Háskóla Íslands.
Skráning
Skráning fer fram á Moodle-vef námskeiðsins: http://education4site.org/netnam/course/view.php?id=4
Nýir notendur í námskeiðskerfinu eru beðnir um að búa til nýjan reikning. Þegar það hefur verið gert kemur staðfesting í tölvupósti með tengli sem þarf að smella á. Að því loknu er þér boðið að innrita þig í námskeiðið. Hafðu samband við Tryggva Thayer (tbt@hi.is) ef upp koma vandamál í skráningarferlinu.
Smelltu hér til að fá ítarlegar leiðbeiningar um innskráningu.
Upptökur og Facebook
Einnig er bent á Facebook hópinn Borgaravitund https://www.facebook.com/groups/borgaravitund/ sem er umræðuvettvangur tengdur námskeiðunum.
Um skipuleggjendur námskeiðsins
Menntavísindasvið og Rannsóknarstofa í upplýsingatækni og miðlun við Háskóla Íslands (HÍ), Heimili og skóli - landssamtök foreldra, Menntamiðja og 3f - félag um upplýsingatækni í menntun standa að námskeiðinu. Styrkir vegna þróunar og kennslu þess hafa verið veittir frá Háskóla Íslands (Kennsluþróunarsjóði), Reykjavíkurborg og úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla.
Að námskeiðinu Netið okkar koma kennarar og annað fagfólk á ýmsum sviðum
- Bjarndís Fjóla Jónsdóttir, kennsluráðgjafi í upplýsingatækni á skrifstofu fræðslu- og frístundaþjónustu Hafnarfjarðar
- Guðberg K. Jónsson, verkefnastjóri SAFT
- Hafþór Freyr Líndal, fulltrúi ungmennaráðs SAFT
- Hrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla - landssamtök foreldra
- Ragnheiður Líney Pálsdóttir, kennari í upplýsingatækni í Lindaskóla
- Salvör Gissurardóttir, lektor við Háskóla Íslands
- Sigríður Dögg Arnardóttir (Sigga Dögg), kynfræðingur
- Skúlína Kjartansdóttir, aðjúnkt Háskóla Íslands
- Sólveig Jakobsdóttir, dósent við Háskóla Íslands
- Tryggvi Thayer, verkefnisstjóri Menntamiðju
- Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor í tómstunda- og félagsmálafræði
- Þórir Ingvarsson, lögreglufulltrúi
- Þröstur Jónasson, gagnasmali