
Fréttabréf Grenivíkurskóla
7. tbl. 4. árg. - september 2023
Kæra skólasamfélag
Þá höldum við enn á ný inn í nýtt skólaár, eftir sumarfrí sem var vonandi sem flestum gott og afslappandi.
Ég vil byrja á að bjóða Gabríelu Sól Magnúsdóttur velkomna til starfa, en hún verður umsjónarkennari á unglingastigi í vetur. Að öðru leyti verður sama fólk við störf hjá okkur í vetur, en þær Sigríður Diljá og Inga Rakel verða í fæðingarorlofi stóran part vetrar. Við hlökkum til að fá þær aftur til starfa á vordögum.
Líkt og undanfarin ár verða í grunninn þrír námshópar í skólanum í vetur, einn á hverju stigi (yngsta stig, miðstig og unglingastig).
- 1.-4. bekkur er saman í námshóp. Í kennarateymi þessa hóps eru Heiða Björk Pétursdóttir, Steinunn Adolfsdóttir og Svala Fanney Njálsdóttir. Umsjónarkennarar eru þær Heiða Björk og Steinunn.
- 5.-7. bekkur er saman í námshóp. Í kennarateymi þessa hóps eru Guðrún Árnadóttir, Hólmfríður Björnsdóttir og Inga María Sigurbjörnsdóttir. Umsjónarkennarar eru þær Hólmfríður og Inga María.
- 8.-10. bekkur er saman í námshóp. Í kennarateymi þessa hóps eru Edda Björnsdóttir, Gabríela Sól Magnúsdóttir og Jónína Margrét Guðbjartsdóttir, en auk þess mun skólastjóri kenna einhverja tíma. Síðar í vetur koma svo þær Sigríður Diljá og Inga Rakel inn í teymið. Umsjónarkennari er Gabríela Sól.
- Kolbrún Hlín Stefánsdóttir sér um hand- og myndmenntarkennslu og þá sér Björn Andri Ingólfsson um íþróttakennslu þar til Inga Rakel lýkur sínu fæðingarorlofi.
Þótt hóparnir séu í grunninn til með þessum hætti er ekki þar með sagt að tiltekinn hópur sé alltaf allur saman í kennslustundum. Nemendum er skipt í smærri hópa í t.d. sundi, list- og verkgreinum og íþróttum. Þá hefur hvert kennarateymi sveigjanleika til að skipuleggja hópaskiptingu í bóklegum greinum eftir þörfum nemenda og viðfangsefnum hverju sinni. Áfram verður áhersla á einstaklingsmiðað nám og er það trú okkar að teymiskennslan hjálpi okkur þar með auknum sveigjanleika og sameiginlegri ábyrgð á nemendum.
Skipulag skóladagsins verður áfram með svipuðum hætti. Við hefjum flesta daga á lestri og hreyfistund og höldum svo í morgunmat kl. 9:00. Við taka kennslulotur til kl. 14:00, en þá lýkur skóla hjá öllum nemendum, alla daga.
Við óskum hér eftir sem hingað til eftir góðu samstarfi við heimili nemenda, enda er það lykillinn að velferð, vellíðan og árangri nemenda skólans. Óhjákvæmilegt er þó að stundum komi eitthvað upp á í dagsins önn og viljum við hvetja foreldra og forráðamenn til að hafa samband við skólann ef upp koma atvik eða ef spurningar vakna varðandi skólastarfið.
Megi ánægja, sköpunarkraftur og góð samskipti einkenna skólastarfið í vetur!
Með kveðju úr skólanum,
Þorgeir Rúnar Finnsson
skólastjóri Grenivíkurskóla
Skólalóðin - staðan
Í þessum áfanga verður lagt gervigras á þrjú svæði auk þess sem rennibrekka verður útbúin á suðausturhorni lóðarinnar. Á einu gervigrassvæðinu verða leiktæki, á öðru verður fjölnota íþróttavöllur en því þriðja er óráðstafað enn sem komið er, en hugmyndir um að þar gæti t.d. komið hjólabraut eða annað sniðugt með tíð og tíma. Lóðin verður nokkuð hrá enn um sinn, en frágangur göngustíga, gróðurs og fleira í þeim dúr bíður betri tíma.
Það er von okkar að þessi nýja skólalóð verði nemendum skólans, gestum tjaldsvæðis og sundlaugar, sem og íbúum öllum, til ánægju og gleði til langrar framtíðar.
Skólatöskugjafir
Útivistartími og umferðaröryggi
Þann 1. september breytast reglur um útivistartíma barna og unglinga. 12 ára börn og yngri mega lengst vera úti til kl. 20:00, en 13-16 ára börn mega vera úti til kl. 22:00. Mikilvægt er að foreldrar og forráðamenn standi saman um að virða útivistarreglurnar.
Þá er tilvalið, nú þegar skóli er hafinn á nýjan leik, að fara vel yfir ýmis atriði er varða umferðaröryggi, t.d. á leið í og úr skóla. Við munum fara yfir þessi mál með nemendum hér í skólanum, en hvetjum ykkur einnig til þess að ræða þessi mál heima við. Ýmsar upplýsingar og góð ráð varðandi umferðaröryggi er að finna á þessari síðu.
Myndir úr skólastarfinu - ágúst
Á döfinni í september
- 4. september: 5. og 6. bekkur fara í siglingu með Húna II
- 8. september: Dagur læsis
- 16. september: Dagur íslenskrar náttúru
- 21. september: Samskóladagur fyrir 5.-7. bekk í Grenivíkurskóla
- 22. september: Starfsdagur - frí hjá nemendum.
- 27. september: Deiglan - skapandi smiðjur fyrir 8.-10. bekk í Hrafnagilsskóla
Grenivíkurskóli
Ábyrgðarmaður: Skólastjóri Grenivíkurskóla
Email: grenivikurskoli@grenivikurskoli.is
Website: http://www.grenivikurskoli.is
Location: Grenivík
Phone: 414-5413
Facebook: https://www.facebook.com/search/top?q=greniv%C3%ADkursk%C3%B3li