
UT í námi og kennslu
Menntabúðir - Þema: Brot af því besta
Fimmtudaginn 27. nóvember kl. 16:15-18:15
Menntabúðir verða haldnar í stofu H-207 í húsnæði Menntavísindasviðs HÍ við Stakkahlíð. Menntabúðir er samkoma þar sem fólk miðlar af eigin reynslu og þekkingu og aflar sér fróðleiks frá öðrum þátttakendum. Þær eru ætlaðar starfandi kennurum á öllum skólastigum og kennaranemum. Þátttakendur geta fengið staðfesta viðurkenningu á endurmenntun frá Starfsþróun Menntavísindastofnunar HÍ. Þátttaka er ókeypis en gert er ráð fyrir virkri þátttöku. Sjá umfjöllun á UT-torgi.
Þátttakendur eru beðnir um að koma með framlag í búðirnar. Framlög geta verið margbreytileg, t.d. að segja frá kennsluhugmynd, vefsíðu, forriti, smáforriti, námsskrárvinnu, varpa fram spurningu eða koma með eitthvað málefni sem þarfnast lausnar.
Þemað að þessu sinni verður brot af því besta.
Dagskrá:
- kynning á edPuzzle, reynsla kennara úr Klettaskóla
- kynning á möguleikum google Hangouts, Menntamiðja
- kynning á vefverkfæri eTwinning, Dalskóli
- kynning á reynslu iPadkennslu í Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit
- kynning á ChromeBook tölvunni, Hólabrekkuskóli
- kynning á kennsluhugmyndum um skapandi UT-vinnu, Ártúnsskóli
Menntabúðir 13. nóvember 2014
Menntabúðir 31. október 2014
Menntabúðir 16. október 2014
Event Information
Menntabúðir - Brota af því besta
When?
Thursday, Nov 27, 2014, 04:15 AM
Where?
Háskóli Íslands - Menntavísindasvið, Stakkahlíð, Reykjavik, Capital Region, Iceland
UT-torg - Menntamiðja
Email: uppltorg@gmail.com
Website: www.uttorg.menntamidja.is
Facebook: https://www.facebook.com/pages/UT-torg/173085796204552?ref=hl
Twitter: @UT_torg