
Árshátíðartengja
Oddeyrarskóli janúar 2019
Árshátíð Oddeyrarskóla haldin 25. og 26. janúar
Kæru nemendur/foreldrar/forráðamenn!
Nú styttist óðum í árshátíð nemenda en hún verður dagana 25. og 26. janúar.
Æfingar standa nú sem hæst og nemendur eru að vanda jákvæðir og standa sig vel.
Íþróttakennsla fer að hluta til fram utandyra og í kennslustofum nemenda árshátíðarvikuna.
Föstudaginn 25. janúar verða nemendasýningar, en sýningar fyrir foreldra og aðra aðstandendur verða á laugardeginum.
Í fyrra vorum við með þrjár sýningar á laugardeginum og þótti takast vel til. Rýmra var um áhorfendur í sal og á kaffihlaðborði. Þessu verður haldið áfram með sama hætti, en röðun verður önnur en í fyrra þar sem við ætlum nú að aldursblanda á sýningarnar.
Árshátíðarsýningar laugardaginn 26. janúar verða þrjár að þessu sinni:
Kl. 11:00 sýna 1., 5., 7. og 10. bekkur.
Kl. 13:00 sýna 2., 4.,8. og 10. bekkur.
Kl. 15:00 sýna 3., 6., 9. og 10. bekkur.
Salurinn opnar hálftíma fyrir sýningar. Ekki er hægt að taka frá sæti.
Miðasala og verð: Forsala á sýningarnar verður hjá Kristínu ritara á miðvikudag, fimmtudag og föstudag fyrir árshátíð. Í forsölu kostar hver miði 500 krónur en á sýningardag (laugardag) kosta allir miðar 600 krónur. Krakkar á grunnskólaaldri greiða inn á sýninguna en frítt er fyrir börn undir 6 ára. Fólk sem á börn á fleiri en einni sýningu getur látið vita í miðasölu og fær þá miða fyrir seinni sýninguna án endurgjalds.
Flestir nemendur sýna á síðustu sýningunni og því mælum við með því að þeir foreldrar barna í 10. bekk sem hafa val um fleiri en eina sýningu komi frekar á aðra hvora fyrri sýninguna.
Föstudagurinn 25. janúar
Nemendur mæta allir í heimastofur sínar á venjulegum tíma, þ.e. kl. 8:10. Þá hefst undirbúningur sýninga og kl. 9:00 mæta allir nemendur á sal. Við tökum okkur hlé um kl. 10 og þá fara allir nemendur í stofur, borða nesti og teygja úr sér. Þennan dag má koma með safa og sætabrauð til hátíðarbrigða (ath. ekki gos eða sælgæti).
Eftir nesti fara allir nemendur aftur á sal. Eftir frágang og lokaundirbúning fyrir laugardagssýningarnar er hádegismatur.
Skóladegi lýkur á sama tíma og venja er skv. stundatöflu á föstudögum.
Mæting nemenda á laugardag 26/1
Nemendur mæta í heimastofur sínar á laugardag skv. upplýsingum hér fyrir neðan. Þeir nemendur sem eru í upphafi sýninga þurfa að vera mættir í stofu stundvíslega hálftíma fyrir sýningu og allir aðrir þurfa að vera mættir í stofu 15 mínútum áður en sýning hefst (nánari boð um þetta koma frá umsjónarkennurum).
Á árshátíðardaginn er skyldumæting nemenda og þeir mæta í stofur sem hér segir:
1. sýning
Allir nemendur mæta í sínar heimastofur.
2. sýning
2. bekkur mætir í 1. bekkjar stofu (107)
4. bekkur mætir í myndmenntastofu
8. bekkur mætir í sína heimastofu
3. sýning:
3. bekkur mætir í 1. bekkjar stofu (107)
Aðrir bekkir mæta í sínar heimastofur.
Kaffisala foreldrafélagsins
Foreldrar bjóða upp á stórglæsileg kaffihlaðborð sýningardaginn 26. janúar. Hægt er að kaupa kaffi milli sýninga, strax að lokinni fyrstu og annarri sýningu. Þeir sem koma á síðustu sýninguna fara fyrst í kaffi (um kl. 14).
Ágóði kaffisölunnar rennur til foreldrafélagsins sem m.a. styður við skólastarfið og störf bekkjarráða.
Verð fyrir kaffihlaðborð:
- 1000 krónur fyrir fullorðna
- 500 krónur fyrir börn á skólaaldri.
- Frítt er fyrir börn yngri en 6 ára.
Fulltrúar foreldrafélagsins taka á móti bakkelsi í heimilisfræðistofu milli kl. 10 og 11.
Nauðsynlegt er að merkja brauðföt og kanna hvort hægt sé að fara með þau heim samdægurs, annars að vitja þeirra sem fyrst í heimilisfræðistofuna.
Árshátíðarball
Laugardagur 26. janúar
Á laugardegi eru sýningar fyrir fjölskyldur nemenda og aðra gesti. Til að sem flestir geti fengið sæti hafa nemendur ekki verið á sýningum á laugardegi, heldur hafa verið með kennurum sínum í stofum meðan á sýningu stendur. Við biðjum foreldra um að virða þessa reglu. Við biðjum fólk um að sýna tillitssemi og yfirgefa ekki salinn fyrr en allir bekkir hafa sýnt sitt atriði. Til að hljóð skili sér og nemendur fái að njóta sín á sviði verður að vera gott næði í salnum. Foreldrar yngstu barnanna sækja börnin sín í stofurnar að sýningum loknum, svo að allir komist í kaffi eða geti fylgst að heim á leið. Börnin eru á ábyrgð foreldra í kaffihléum og eftir sýningar.