
Menntabúðir #Eymennt
Þelamerkurskóla 17. nóvember kl. 16:00-17:30
Upplýsingatækni á unglingastigi
Að þessu sinni verður viðfangsefni menntabúðanna upplýsingatækni á unglingastigi. Þær verða haldnar í Þelamerkurskóla þriðjudaginn 17. nóvember kl. 16:.00-17:30.
Markmið menntabúðanna er að gefa kennurum þessa aldurshóps og þeim sem hafa áhuga kost á að miðla reynslu sinni af notkun upplýsingatækni og læra hver af öðrum. Kennarar eru hvattir til að segja frá reynslu sinni og deila góðum hugmyndum.
Kynningar, spurningar og umræður
Jafnhliða því sem kennarar eru hvattir til að koma á menntabúðirnar til að deila reynslu sinni og þekkingu þá er nú þegar ljóst að fjölbreyttar menntabúðir verða í boði.
- Google Classroom
- Office 365 í skólastarfi
- Nearpod
- Vendikennsla á unglingastigi
- QR kóðar í námi og kennslu
Hérna er yfirlit yfir menntabúðirnar og tímasetningar þeirra.
Þátttakendur geta búist við að hafa velt eftirfarandi spurningum fyrir sér með þeim sem þeir hitta á menntabúðunum:
- Hvað er árangursríkt að vinna með nemendum í upplýsingatækni og hvers vegna?
- Hver eru helstu vandamálin við kennslu upplýsingatækni á unglingastigi og hvernig má komast hjá þeim?
- Hvaða smáforrit (öpp) virka vel í kennslu á mið- og unglingastigi og hvernig eru þau notuð?
- Hvaða smáforrit virka ekki og hvers vegna ekki?
- Hvernig myndu kennarar mið- og unglingastigs vilja sjá upplýsingatækni í grunnskóla nútíðar og framtíðar?
Hvað eru menntabúðir #Eymennt?
Menntabúðir #Eymennt eru styrktar af Endurmenntunarsjóði grunnskóla og eru samstarfsverkefni Hrafnagilsskóla, Brekkuskóla á Akureyri, Þelamerkurskóla og Dalvíkurskóla. Kennarar úr öðrum leik- og grunnskólum eru velkomnir að fylgja samstarfsskólunum fjórum eftir í þessari endurmenntunarvegferð.
Á núverandi skólaári er áætlað að halda átta menntabúðir, eina í hverjum mánuði og verða ólík þemu sett upp í hvert skipti.